Jon Flanagan, varnarmaður Liverpool, hefur játað á sig líkamsárás en henn réðist á kærustu sína Rachael Wall sem er tveggja barna móðir.
Flanagan er 25 ára og var ákærður eftir líkamsárás í miðborg Liverpool aðfaranótt 22. desember. Hann sló kærustu sína ítrekað og sparkaði einu sinni í hana.
Flanagan er 25 ára og var ákærður eftir líkamsárás í miðborg Liverpool aðfaranótt 22. desember. Hann sló kærustu sína ítrekað og sparkaði einu sinni í hana.
Dómur í málinu verður kveðinn upp þann 17. janúar.
Tímabilið 2010/2011 spilaði Flanagan sína fyrstu leiki fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni og mikla vonir voru þá bundnar við hann. Framfarir hans hafa þó ekki verið miklar og hann hefur nánast eingöngu spilað með varaliðinu á þessu tímabili.
Hann spilaði þó allan leikinn þegar Liverpool tapaði fyrir Leicester í deildabikarnum. Á síðasta tímabili var hann lánaður til Burnley.
Talsmaður Liverpool segir að félagið muni ekki tjá sig um málið að svo stöddu.
Athugasemdir