þri 02. janúar 2018 21:45
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Atalanta sló Napoli út í 8-liða
Mynd: Getty Images
Napoli 1 - 2 Atalanta
0-1 Timothy Castagne ('50)
0-2 Papu Gomez ('81)
1-2 Dries Mertens ('85)

Maurizio Sarri, þjálfari Napoli, ákvað að hvíla nokkra lykilmenn í 8-liða úrslitum ítalska bikarsins gegn Atalanta.

Leikurinn var mjög jafn frá upphafi til enda en nýting gestanna einfaldlega betri.

Lorenzo Insigne og Dries Mertens komu báðir af bekknum snemma í síðari hálfleik eftir opnunarmark Timothy Castagne.

Alejandro 'Papu' Gomez tvöfaldaði forystuna áður en Mertens minnkaði muninn á 85. mínútu, eftir stoðsendingu frá Insigne.

Atalanta mætir annað hvort Juventus eða Torino í undanúrslitum.

Napoli er á toppi ítölsku deildarinnar en Atalanta er um miðja deild eftir slæma byrjun. Bæði lið eru í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner