Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hrósaði Sadio Mane sérstaklega eftir mark hans í 2-1 sigrinum á Burnley í gær.
Mane hefur ekki verið jafn áberandi í liði Liverpool undanfarnar vikur og oft áður en Klopp segir að leikmenn liðsins hafi fagnað frammistöðu hans í gær.
Mane hefur ekki verið jafn áberandi í liði Liverpool undanfarnar vikur og oft áður en Klopp segir að leikmenn liðsins hafi fagnað frammistöðu hans í gær.
„Hann kom inn í klefa eftir leik og allir leikmenn stóðu upp og klöppuðu fyrir honum," sagði Klopp eftir leikinn í gær.
„Sadio er ótrúlega mikilvægur fyrir okkur," bætti Klopp við en markið hjá Mane kom með laglegu skoti.
„Hann er sterkur og fljótur. Stundum gengur ekki allt upp hjá honum en síðan skorar hann svona mark. Vá!"
Athugasemdir