Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 02. janúar 2018 16:05
Elvar Geir Magnússon
Mun einhver af þessum tíu rjúfa einokun Messi og Ronaldo?
Ronaldo og Messi.
Ronaldo og Messi.
Mynd: Getty Images
Síðustu tíu ár hefur enginn fyrir utan Cristiano Ronaldo og Lionel Messi afrekað það að vinna Ballon d'Or gullknöttinn. Þeir eru einu leikmennirnir sem eru enn spilandi sem hafa unnið verðlaunin.

Þessir tveir mögnuðu leikmenn eru báðir í hópi bestu leikmanna sögunnar og er í raun ósanngjarnt fyrir aðra fótboltamenn að vera uppi á sama tíma og þeir!

Nú þegar árið 2018 er runnið í garð og Ronaldo og Messi eru báðir komnir á fertugsaldurinn er spurning hvort þetta verði árið þar sem nýtt nafn kemst á verðlaunagripinn?

Við erum að sigla inn í HM ár og þar fá menn tækifæri til að láta ljós sitt skína á allra stærsta sviðinu.

Daily Mail setti saman tíu nafna lista yfir menn sem gætu átt stórgott ár og hirt knöttinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner