Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 02. janúar 2018 18:30
Hafliði Breiðfjörð
Rut Kristjánsdóttir áfram hjá ÍBV
Rut fagnar bikartitli með ÍBV síðasta sumar.
Rut fagnar bikartitli með ÍBV síðasta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV og Rut Kristjánsdóttir hafa endurnýjað samning sín á milli um eitt ár. Rut sem verður 25 ára gömul á árinu gekk í raðir félagsins frá Fylki fyrir síðustu leiktíð.

Hún er miðjumaður sem spilaði 21 leik fyrir ÍBV í deild og bikar á árinu og skoraði eitt mark.

„ÍBV fagnar þessari ákvörðun Rutar en hún var ein af bestu leikmönnum liðsins í sumar, átti sennilega sitt besta ár á ferlinum. Rut kóronaði frábært tímabil sitt í bikarúrslitaleiknum þegar ÍBV sigraði Stjörnuna 3-2 í framlengdum úrslitaleik," segir í tilkynningu félagsins.

Rut hefur mikla reynslu og hefur á ferlinum spilað 122 leiki í deild og bikar og skorað 18 mörk. Flesta leikina hefur hún spilað með Fylki en hún var einnig hjá Haukum árið 2015 þar sem hún lék 6 leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner