banner
   þri 02. janúar 2018 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Stuðningsmenn Man Utd sungu til heiðurs Rooney
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Manchester United sem ferðuðust með liðinu til Liverpool heiðruðu fyrrverandi fyrirliða sinn, Wayne Rooney. Man Utd heimsótti Everton í ensku deildinni á nýársdag.

Rooney gerði magnaða hluti á 13 árum hjá Rauðu djöflunum og hafa stuðningsmenn ekki gleymt öllu sem hann gerði fyrir félagið.

Man Utd hafði betur í leiknum og vann 2-0, þökk sé laglegum mörkum frá Anthony Martial og Jesse Lingard. Rooney átti slakan leik og var skipt útaf snemma í síðari hálfleik.

Myndband af söngvum stuðningsmanna er hægt að sjá hér fyrir neðan. Man Utd er í öðru sæti ensku deildarinnar á meðan Everton er um miðja deild.




Athugasemdir
banner
banner