Watford mun áfrýja rauða spjaldinu sem varnarmaðurinn Christian Kabasele fékk í 2-1 sigrinum gegn Wolves í gær, nýársdag.
Hinn 28 ára gamli Kabasele fékk í fyrstu gult spjald, en því var breytt í rautt eftir VAR-skoðun.
Dermot Gallagher, fyrrum dómari í ensku úrvalsdeildinni, telur að um réttan dóm hafi verið að ræða. „Það er enginn fyrir aftan Kabasele þegar brotið á sér stað. Cathcart er of langt í burtu," sagði Gallagher við Sky Sports.
„(Diogo) Jota hefði getað náð skoti á markið. Þetta er frábært dæmi um VAR því dómarinn á vellinum hefði ekki getað séð hvað endursýningarnar sýna."
Myndband af öllu því helsta úr leiknum má sjá hér að neðan.
Nigel Pearson hefur blásið nýju lífi í Watford og hefur liðið náð í tíu stig af 12 mögulegum í síðustu fjórum leikjum sínum.
Athugasemdir