Arsenal hefur kallað framherjann Eddie Nketiah til baka úr láni frá Leeds United.
Nketiah kvaddi stuðningsmenn Leeds eftir 1-1 jafntefli gegn WBA í gær.
Nketiah kvaddi stuðningsmenn Leeds eftir 1-1 jafntefli gegn WBA í gær.
Hinn tvítugi Nketiah skoraði fjögur mörk í fyrstu sex leikjum sínum með Leeds.
Hann byrjaði hins vegar einungis tvo leiki hjá liðinu og Arsenal ákvað því að kalla hann til baka úr láni.
Arsenal leitar nú að öðru félagi fyrir Nketiah þar sem hann getur farið á lán og spilað meira en hann gerði hjá Leeds.
Unfortunately my time @LUFC has come to an end. It’s been an amazing experience and a privilege to play for such an amazing club. I would like to say a big thank you to my teammates, the coaching staff and the manager for making my time here an enjoyable one. 1/2 pic.twitter.com/IgQNfkOWn5
— Eddie Nketiah (@EddieNketiah9) January 1, 2020
Athugasemdir