Mikel Arteta, stjóri Arsenal, gerir fastlega ráð fyrir því að Granit Xhaka verði áfram hjá félaginu.
Xhaka, sem var sviptur fyrirliðabandinu hjá Arsenal, fyrir ekki svo löngu hefur verið orðaður við þýska félagið Hertha Berlín en moldríkur viðskiptamaður var að kaupa félagið og er hann tilbúinn að leggja fram mikinn pening í leikmannakaup.
Arteta er þó viss um að Xhaka verði áfram í herbúðum Arsenal.
„Ég held að hann verði áfram hjá okkur. Mér líst mjög vel á hann og hvernig við viljum spila þá held ég að hann sé klár í það verkefni og hann getur orðið magnaður leikmaður fyrir þetta félag," sagði Arteta.
Athugasemdir