Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 02. janúar 2020 15:10
Magnús Már Einarsson
Arteta útilokar sölu á Aubameyang
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segist ekki vera að íhuga að selja framherjann Pierre Emerick-Aubameyang.

Sögusagnir á Spáni segja að Real Madrid ætli að bjóða 70 milljónir punda og leikmann í skiptum fyrir Aubameyang.

Arteta blés á þessar fréttir á fréttamananfundi sínum í dag.

„Ég hugsa ekki einu sinni um möguleikann á að selja Auba. Ég vil hafa hann hér," sagði Arteta.
Athugasemdir
banner