Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 02. janúar 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Barcelona hafnar því að Todibo sé á leið til Milan
Jean-Clair Todibo
Jean-Clair Todibo
Mynd: Getty Images
Jean-Clair Todibo, varnarmaður Barcelona, er ekki á leið til ítalska félagsins AC Milan en þetta kemur fram í Mundo Deportivo.

Ítalskir fjölmiðlar greindu frá því að Milan væri búið að ná samkomulagi við Barcelona um að fá Todibo á láni út leiktíðina með möguleika á að kaupa hann í sumar.

Þessi ungi varnarmaður er hins vegar ekki á leið frá félaginu en Barcelona staðfesti þetta við Mundo Deportivo.

Miðillinn greindi þó frá því að Mónakó, Watford, Southampton og Bayer Leverkusen hafa ásamt Milan lagt fram tilboð en að Barcelona hafi ekki tekið ákvörðun um framtíð hans.

Það verður ákveðið í næstu viku er félagið fundar með umboðsmanni Todibo en leikmaðurinn vill berjast fyrir sæti sínu hjá Börsungum samkvæmt Mundo Deportivo.
Athugasemdir
banner
banner