Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 02. janúar 2020 15:00
Magnús Már Einarsson
Benfica til í að lána Ferndandes - Endar hann hjá Man Utd?
Mynd: Getty Images
Benfica er tilbúið að hlusta á tilboð í miðjumanninn Gedson Fernandes.

Þessi tvítugi leikmaður hefur verið orðaður við Manchester United og fleiri félög að undanförnu.

Umboðsmenn Fernandes hafa rætt við fjögur ensk félög auk þess sem Lyon og AC Milan hafa sýnt áhuga.

Talið er að Benfica vilji lána Fernandes í eitt og hálft ár til að byrja með.

Fernandes gæti farið til Manchester United en miðjumennirnir Paul Pogba og Scott McTominay eru báðir meiddir og líklegt þykir að Ole Gunnar Solskjær sæki nýjan miðjumann í þessum mánuði.
Athugasemdir
banner
banner
banner