Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 02. janúar 2020 19:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Liverpool og Sheffield United: Keita á miðjunni
Naby Keita kemur inn fyrir Lallana.
Naby Keita kemur inn fyrir Lallana.
Mynd: Getty Images
Það er einn leikur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Í honum mætast Liverpool og Sheffield United á Anfield. Leikurinn hefst klukkan 20:00.

Liverpool er á toppnum með tíu stiga forskot og tvo leiki til góða. Sheffield United hefur komið mikið á óvart og er í áttunda. Ef svo fer að gestirnir frá Sheffield vinni mjög, mjög óvæntan sigur þá fer liðið upp í fimmta sæti.

Það er aðeins ein breyting á liði Liverpool frá 1-0 sigrinum gegn Wolves fyrir áramót. Naby Keita kemur inn fyrir Adam Lallana.

Miðvörðurinn Nathaniel Phillips, sem var kallaður til baka úr láni frá Stuttgart, er á bekknum hjá Liverpool.

Sheffield United tapaði 2-0 gegn Manchester City fyrir áramót. Frá þeim leik gerir Chris Wilder tvær breytingar. John Lundstram og David McGoldrick koma inn í liðið fyrir Mo Besic og Callum Robinson.

Byrjunarlið Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Van Dijk, Gomez, Robertson, Keita, Wijnaldum, Henderson, Salah, Firmino, Mane.
(Varamenn: Adrian, Phillips, Milner, Lallana, Elliott, Jones, Origi)

Byrjunarlið Sheffield United: Henderson, Basham, Egan, O’Connell, Baldock, Lundstram, Norwood, Fleck, Stevens, McGoldrick, Mousset.
(Varamenn: Verrips, Jagielka, Osborn, Besic, Robinson, McBurnie, Sharp)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner