Mikel Arteta, stjóri Arsenal, greindi frá því í dag að varnarmaðurinn Calum Chambers verði frá keppni í allt að níu mánuði vegna meiðsla á hné.
Chambers meiddist í 2-1 tapinu gegn Chelsea um síðustu helgi og fór í aðgerð í dag.
„Þetta lítur ekki vel út," sagði Arteta um meiðsli Chambers á fréttamannafundi í dag.
Chambers meiddist í 2-1 tapinu gegn Chelsea um síðustu helgi og fór í aðgerð í dag.
„Þetta lítur ekki vel út," sagði Arteta um meiðsli Chambers á fréttamannafundi í dag.
Arteta viðurkenndi einnig að meiðslin gætu orðið til þess að hann kaupi nýjan miðvörð til Arsenal í þessum mánuði en félagaskiptaglugginn opnaði á nýjan leik í gær.
Athugasemdir