Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 02. janúar 2020 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Real Madrid vill kaupa 13 ára bróður Mbappe
Ethan Mbappe gæti farið til Real Madrid
Ethan Mbappe gæti farið til Real Madrid
Mynd: Getty Images
Spænska félagið Real Madrid vill fá Ethan Mbappe, 13 ára bróður Kylian Mbappe, til félagsins en Diario greinir frá þessu.

Ethan spilar í dag með Paris Saint-Germain eins og Kylian en hann spilar með U14 ára liði franska félagsins.

Hann þykir afar efnilegur og voru njósnarar Real Madrid heillaðir af honum er þeir sáu hann spila á stóru móti í Miami í Bandaríkjunum.

Madrídingar hafa lengi verið að eltast við Kylian en félagið gæti reynt að fá hann í sumar frá PSG.

Real Madrid gæti þurft að bæta heimsmetið til að fá Kylian en það þykir líklegt að Ethan fari með honum til Spánar.
Athugasemdir
banner
banner
banner