Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 02. janúar 2020 16:15
Magnús Már Einarsson
Wolves í viðræðum um kaup á framherja
Mynd: Getty Images
Wolves er í viðræðum um að kaupa framherjann Leonardo Campana frá Barcelona SC í Ekvador.

Campana varð markakóngur þegar U20 lið Ekvador varð Suður-Ameríkumeistari á síðasta ári.

Líklegt er að Campana byrji á að fara í U23 ára lið Wolves ef að samningar nást.

Campana hefur áður verið orðaður við Napoli og fleiri stór félög en hann er með spænskt vegabréf og þarf því ekki að sækja sérstaklega um atvinnuleyfi á Englandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner