Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 02. janúar 2021 15:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
100 marka Son ánægður en hefði viljað leggja upp fyrir 'H'
Mynd: Getty Images
„Það var frábært að halda hreinu og vinna 3-0. Að byrja nýja árið svonaa er stórkostlegt," sagði Son Heung-min í viðtali við BT Sport eftir sigur á Leeds í hádeginu. Son skoraði og lagði upp í leiknum og var markið sem hann skoraði það 100. fyrir Tottenham.

„Ég er mjög glaður með liðsfélagana og er ekki að gera þessa hluti einn, ég þurfti á mikilli hjálp að halda til að ná þessum árangri. Að skora 100 mörk fyrir eitt lið er stórt afrek."

Son var spurður út samband sitt við Kane en þeir ná einstaklega vel saman.

„Við leggjum mikið á okkur og höfum gert í langan tíma. Ég er pínu svekktur að hafa ekki náð að leggja upp mark fyrir 'H'. Hann vissi að ég var þar sem ég var í markinu."
Athugasemdir
banner
banner