Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 02. janúar 2021 23:10
Ívan Guðjón Baldursson
Arteta: Hlakka mikið til að hefja titilvörnina
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta var mjög kátur eftir 0-4 sigur Arsenal gegn West Bromwich Albion fyrr í kvöld.

Arteta hefur legið undir mikilli gagnrýni fyrir slæmt gengi Arsenal í úrvalsdeildinni en þetta var þriðji sigurinn í röð og annar leikurinn í röð sem liðið heldur hreinu.

„Þetta hefur verið stór vika fyrir okkur, það er ekki auðvelt að spila þrjá leiki á sjö dögum. Þetta var mjög erfitt en strákarnir voru frábærir og núna getum við byggt á þessu," sagði Arteta.

„Strákarnir virtust vera öruggir í vörninni og skapandi í sókn. Það voru kaflar í leiknum þar sem við vorum ekki nógu góðir, við munum skoða þá og greina hvað fór úrskeiðis."

Skoski bakvörðurinn Kieran Tierney var besti maður vallarins. Hann skoraði glæsilegt mark og lagði upp og hrósaði Arteta honum að leikslokum.

„Þetta var stórkostlegt mark hjá Kieran Tierney og spilið í seinna markinu var magnað. Við sýndum frábæran sóknarleik í dag. Kieran hefur verið stórkostlegur eftir að hann náði sér af meiðslum. Hann er strákur sem leggur allt í sölurnar og kemur með mjög góða orku.

„Við erum búnir að klifra aðeins upp töfluna og núna höfum við heila viku til að undirbúa okkur fyrir næsta leik sem er í bikarnum. Við eigum góðar minningar úr bikarnum og hlakkar okkur mikið til að hefja titilvörnina."


Rúnar Alex Rúnarsson var ónotaður varamaður í dag. Hann gæti varið mark Arsenal í FA bikarnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner