Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 02. janúar 2021 17:41
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Tottenham og Leeds: Hojbjerg maður leiksins
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Pierre-Emile Höjbjerg var valinn besti maður vallarins í 3-0 sigri Tottenham gegn Leeds United í dag.

Danski miðjumaðurinn var öflugur á miðsvæðinu í öruggum sigri. Hann skoraði hvorki né lagði upp en átti mjög góðan leik.

Höjbjerg er einn af tveimur leikmönnum sem fengu 8 í einkunn hjá Sky, ásamt Son Heung-min sem skoraði og lagði upp.

Harry Kane gerði slíkt hið sama en fær 7 í einkunn, líkt og flestir leikmenn liðsins. Matt Doherty fær aðeins 5 fyrir sinn þátt eftir að hafa nælt sér í seinna gult spjald í uppbótartíma.

Ezgjan Alioski var besti leikmaður Leeds með 7 í einkunn og Patrick Bamford verstur með 5.

Tottenham: Lloris (6), Doherty (5), Alderweireld (7), Dier (7), Davies (6), Winks (7), Hojbjerg (8), Ndombele (7), Bergwijn (7), Kane (7), Son (8).
Varamenn: Sissoko (6), Moura (6), Vinicius (6).

Leeds: Meslier (6), Dallas (6), Ayling (6), Struijk (5), Alioski (7), Phillips (6), Raphinha (6), Rodrigo (6), Klich (6), Harrison (6), Bamford (5).
Varamenn: Poveda (7), Shackleton (6), Hernandez (7).
Athugasemdir
banner
banner
banner