Nýliðar West Bromwich Albion tóku á móti Arsenal í kvöld og steinlágu 0-4.
Arsenal átti góðan leik og var skoski bakvörðurinn Kieran Tierney valinn maður leiksins í einkunnagjöf Sky Sports.
Tierney skoraði glæsilegt mark og lagði upp og fékk 8 í einkunn, jafn mikið og Bukayo Saka, Emile Smith-Rowe og Alexandre Lacazette sem skoraði tvennu.
Charlie Austin kom inn af bekknum í liði West Brom og var verstur á vellinum með 4 í leiknum.
West Brom: Johnstone (6), Furlong (5), Ajayi (5), O’Shea (6), Ivanovic (6), Sawyers (5), Robinson (5), Phillips (6), Gallagher (6), Diangana (5), Pereira (6).
Varamenn: Austin (4), Bartley (5)
Arsenal: Leno (6), Bellerin (7), Holding (7), Mari (7), Tierney (8), Ceballos (7), Xhaka (7), Saka (8), Smith-Rowe (8), Lacazette (8), Aubameyang (7).
Varamenn: Maitland-Niles (6), Willian (6), Willock (6).
Athugasemdir