Edin Terzic, stjóri Dortmund, hefur staðfest að Erling Braut Haaland sé klár í slaginn fyrir leik Dortmund á morgun. Dortmund mætir Wolfsburg klukkan 14:30 í fyrri leik dagsins í þýsku Bundesliga.
Haaland meiddist undir lok nóvember og missti því út um mánuð. Hann var með rifinn lærvöðva.
Haaland meiddist undir lok nóvember og missti því út um mánuð. Hann var með rifinn lærvöðva.
Terzic sagði Jude Bellingham vera tæpan vegna meiðsla en hann gæti tekið þátt á morgun.
Þá kom fram að Youssoufa Moukoko, sextán ára undrabarnið, verður ekki með vegna meiðsla.
Athugasemdir