Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 02. janúar 2021 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu falleg mörk Arsenal í stórsigrinum
Mynd: Getty Images
Arsenal heimsótti West Bromwich Albion og rúllaði yfir nýliðana. Arsenal skoraði tvö mörk í sitthvorum hálfleik og voru fyrstu tvö mörkin afar glæsileg.

Skoski bakvörðurinn Kieran Tierney gerði fyrsta markið með frábæru einstaklingsframtaki úti á vinstri kanti.

Ungstirnið Bukayo Saka tvöfaldaði forystuna skömmu síðar þegar hann kláraði gullfallega sókn Arsenal af stuttu færi.

Alexandre Lacazette bætti svo tvennu við í síðari hálfleik þar sem hann fylgdi fyrst eftir og skoraði svo eftir góða fyrirgjöf frá Tierney.


Athugasemdir
banner
banner
banner