Crystal Palace er tveimur mörkum yfir gegn Sheffield United þegar nokkrar mínútur eru til leiksloka.
Eberechi Eze skoraði seinna mark Palace í leiknum og er það vafalaust eitt af mörkum tímabilsins.
Eze sótti boltann djúpt á eigin vallarhelmingi og skokkaði framhjá leikmönnum Sheffield alveg að vítateignum þar sem hann lagði knöttinn laglega í fjærhornið.
Eze virtist ekkert hafa fyrir þessu marki en varnarleikur Sheffield alveg agalegur.
Markið má sjá með að smella hér.
Athugasemdir