Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 02. janúar 2021 15:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Sonny og Harry eru að gera sérstaka hluti"
Mynd: Getty Images
Harry Kane og Heung-min Son skoruðu báðir fyrir Tottenham í 3-0 sigri á Leeds í dag. Kane lagði upp markið fyrir Son og Son átti stoðsendingu í marki Toby Alderweireld, þriðja marki Tottenham í leiknum.

Kane og Son hafa skorað 22 af 29 mörkum Tottenham í úrvalsdeildinni. Kane hefur lagt upp níu mörk fyrir Son og Son hefur lagt upp fjögur mörk fyrir Kane.

jose Mourinho, stjóri Tottenham, talaði um samband Kane og Son í viðtali eftir leikinn.

„Auðvitað er ég ánægður með samband þeirra. Þeir skilja hvorn annan mjög vel og á móti Leeds er nauðsynlegt að geta sótt. Leeds verst maður gegn manni og því gengur það ekki ef leikmenn eru staðir. Hreyfing Harry Kane og Sonny klár í að klára færin passar vel saman."

„Ég held að í úrvalsdeildinni séu margir góðir leikmenn í öllum liðum, jafnvel þó sumir halda að það séu ekki góðir leikmenn í öllum liðum. En ég verð að segja að Sonny og Harry eru að gera sérstaka hluti á þessari leiktíð,"
sagði Mourinho.
Athugasemdir
banner
banner