Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 02. janúar 2021 10:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Telegraph: Bikarleikirnir munu fara fram þó einungis 14 séu klárir
Mynd: Getty Images
Samkvæmt heimildum The Telegraph hefur enska knattspyrnusambandið sent út tilkynningu til félaga sem taka þátt í 3. umferð ensku bikakeppninnar um næstu helgi.

Tilkynningin er á þá leið að allir leikir muni fara fram ef næst að manna í fjórtán manna leikmannahóp á leikdegi.

Knattspyrnusambandið sendir þetta út eftir að ákvörðun var tekin um að fresta tveimur úrvalsdeildarleikjum þrátt fyrir að félög hafi getað teflt fram þessari stærð af leikmannahópum.

Knattspyrnusambandið er sagt hafa áhyggjur af því að ef gripið verði til frestanna gæti keppnin skaðast af of mörgum frestunum og óvissu hvenær umferðir myndu klárast.
Athugasemdir
banner
banner