Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 02. janúar 2021 11:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tottenham vonsvikið og fordæmir: Tökum á þessu innan félagsins
Lo Celso og Reguilon voru í samkomunni ásamt Erik Lamela og Manuel Lanzini
Lo Celso og Reguilon voru í samkomunni ásamt Erik Lamela og Manuel Lanzini
Mynd: Getty Images
„Við erum mjög vonsviknir og fordæmum þessa hegðun eindregið," segir í svari Tottenham til Sportsmail eftir umfjöllun miðilsins um samkomu þriggja leikmanna Tottenham og eins leikmanns West Ham um hátíðarnar.

Það voru þeir Giovani Lo Celso, Sergio Reguillon og Erik Lamela hjá Tottenham og Manuel Lanzini sem komu saman heima hjá Lo Celso um hátíðarnar og brutu þar samkomureglur í London sem settar voru vegna heimsfaraldursins.

„Myndin sýnir nokkra leikmenn okkar og þeirra fjölskyldu ásamt vinum um jólin... málið verður tekið fyrir og leyst innan félagsins," segir einnig í svarinu.

Tottenham á leik við Leeds klukkan 12:30 og áhugavert verður að sjá byrjunarliðin sem birt verða á næstu mínútum.

Uppfært 11:28: Svar West Ham var í svipuðum dúr. Þar segir félagið að reynt sé að passa upp á allar reglur í þessu ástandi og það séu mikil vonbrigði að sjá þessa hegðun hjá Lanzini.
Athugasemdir
banner
banner