Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 02. febrúar 2020 16:43
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Arteta: Þurfum að gera betur
Mikel Arteta á hliðarlínunni á Turf Moor í dag.
Mikel Arteta á hliðarlínunni á Turf Moor í dag.
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta og lærisveinar hans í Arsenal heimsóttu Burnley á Turf Moor í dag, ekkert var skorað en það var Jay Rodriguez sem kom næst því þegar hann skaut í slána þegar lítið var eftir.

„Það komu góðir kaflar inn á milli en það voru einnig kaflar sem voru ekki nógu góðir. Við vorum að gefa þeim margar aukaspyrnur, innköst og hornspyrnur, þeir eru sterkari en við í þessu."

„Það er klárt mál að það vantar meiri stöðugleika í okkar leik, við þurfum að gera betur," sagði Arteta.

Arsenal er í 10. sæti með 31 stig þeir taka á móti Newcastle í næstu umferð.


Athugasemdir
banner
banner
banner