sun 02. febrúar 2020 16:18
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ítalía: Lazio í 2. sætið
Lazio er í 2. sæti.
Lazio er í 2. sæti.
Mynd: Getty Images
Þremur leikjum er nú ný lokið í ítölsku úrvalsdeildinni, helstu tíðindin þar voru þau að Lazio fór upp í annað sætið eftir sigur á Spal.

Lazio komst í 5-0 áður en Spal tókst að koma boltanum í netið og lokatölur 5-1. Ciro Immobile skoraði tvö og það gerði Felipe Caicedo einnig, Bobby Adekanye skoraði fimmta markið á 58. mínútu og það var svo Simone Missiroli sem minnkaði metin fyrir Spal.

Eins og fyrr segir þá fór Lazio upp í 2. sætið með sigrinum en Inter getur endurheimt það í kvöld, Spal situr á botninum.

Atalanta og Genoa skildu jöfn 2-2, heimamenn komust yfir á 12. mínútu en gestirnir jöfnuðu nokkrum mínútum síðar. Antonio Sanabria kom svo gestunum yfir á 33. mínútu en tveimur mínútum síðar jafnaði Josip Ilicic fyrir heimamenn.

Atalanta er í 4. sæti með 39 stig en Genoa í fallsæti.

AC Milan gerði 1-1 jafntefli við Verona á heimavelli, Davide Faraoni kom Verona yfir á 13. mínútu en Hakan Calhanoglu jafnaði á 29. mínútu. AC Milan er í 6. sæti með 32 stig en Verona í 9. sæti með 30 stig.

Lazio 5 - 1 Spal
1-0 Ciro Immobile ('3 )
2-0 Felipe Caicedo ('16 )
3-0 Ciro Immobile ('29 )
4-0 Felipe Caicedo ('38 )
5-0 Bobby Adekanye ('58 )
5-1 Simone Missiroli ('65 )

Atalanta 2 - 2 Genoa
1-0 Rafael Toloi ('12 )
1-1 Domenico Criscito ('19 , víti)
1-2 Antonio Sanabria ('33 )
2-2 Josip Ilicic ('35 )
Rautt spjald: Valon Behrami, Genoa ('82)

AC Milan 1 - 1 Verona
0-1 Davide Faraoni ('13 )
1-1 Hakan Calhanoglu ('29 )
Rautt spjald: Sofyan Amrabat, Verona ('68)
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 24 4 1 71 14 +57 76
2 Milan 29 19 5 5 55 33 +22 62
3 Juventus 29 17 8 4 44 23 +21 59
4 Bologna 29 15 9 5 42 25 +17 54
5 Roma 29 15 6 8 55 35 +20 51
6 Atalanta 28 14 5 9 51 32 +19 47
7 Napoli 29 12 9 8 44 33 +11 45
8 Fiorentina 28 12 7 9 41 32 +9 43
9 Lazio 29 13 4 12 36 33 +3 43
10 Monza 29 11 9 9 32 36 -4 42
11 Torino 29 10 11 8 28 26 +2 41
12 Genoa 29 8 10 11 31 36 -5 34
13 Lecce 29 6 10 13 26 45 -19 28
14 Udinese 29 4 15 10 28 44 -16 27
15 Verona 29 6 8 15 26 39 -13 26
16 Cagliari 29 6 8 15 29 50 -21 26
17 Empoli 29 6 7 16 22 43 -21 25
18 Frosinone 29 6 6 17 37 60 -23 24
19 Sassuolo 29 6 5 18 33 56 -23 23
20 Salernitana 29 2 8 19 23 59 -36 14
Athugasemdir
banner
banner