KA 2 1 - 2 Dalvík/Reynir
0-1 Númi Kárason
0-2 Jón Heiðar Magnússon
1-2 Sveinn Margeir Hauksson
0-1 Númi Kárason
0-2 Jón Heiðar Magnússon
1-2 Sveinn Margeir Hauksson
Dalvík/Reynir lagði KA 2 að velli þegar liðin mættust í Boganum á Akureyri í A-deild í Kjarnafæðismótinu í dag.
Númi Kárason braut ísinn fyrir Dalvík/Reyni rétt fyrir leikhlé og bætti Jón Heiðar Magnússon við öðru marki áður en dómarinn flautaði til hálfleiks.
Sveinn Margeir Hauksson, fyrrum leikmaður Dalvíkur/Reynis, skoraði fyrir KA 2 þegar um stundarfjórðungur var liðinn af seinni hálfleiknum. Lengra komst KA 2 hins vegar ekki.
Lokatölur 2-1 fyrir Dalvík/Reyni sem er með 11 stig í öðru sæti mótsins. Dalvík/Reynir hefur leikið alla sex leiki sína í Kjarnafæðismótinu. KA 2 á eftir einn leik og er í sjötta sæti af sjö liðum með þrjú stig.
Athugasemdir