Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 02. febrúar 2020 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Neville um Ighalo: Félagið hafði níu mánuði
Odion Ighalo.
Odion Ighalo.
Mynd: Getty Images
Gary Neville.
Gary Neville.
Mynd: Getty Images
Nígeríski sóknarmaðurinn Odion Ighalo varð leikmaður Manchester United á lokadegi félagaskiptagluggans. Hann kemur á láni frá Shanghai Shenhua í Kína.

Ighalo er þrítugur og hefur verið stuðningsmaður Manchester United frá því í barnæsku.

Ighalo þekkir ensku úrvalsdeildina vel eftir að hafa áður leikið fyrir Watford. Tímabilið 2015/16 skoraði hann 15 mörk í 37 úrvalsdeildarleikjum fyrir Watford.

Gary Neville, fyrrum leikmaður Manchester United og núverandi sérfræðingur Sky Sports, er ekki viss um að United hafi verið að gera vel með að fá Ighalo.

Man Utd hleypti Romelu Lukaku til Inter síðasta sumar án þess að fá inn leikmann í staðinn. Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, ákvað að treysta á Marcus Rashford, Anthony Martial og Mason Greenwood.

Rashford er núna meiddur og ákvað United því að leita að skammtímalausn í janúarglugganum. Sú skammtímalausn er Ighalo.

„Þeir þurftu bara annan leikmann á þessu svæði. Rashford verður frá næstu mánuðina," sagði Neville.

„Ég get því miður ekki hleypt félaginu auðveldlega frá þessu. Lukaku fór að ýja að því í febrúar/mars á síðasta ári að hann vildi fara. Það eru níu mánuðir sem félagið hefur haft til að finna leikmann til langtíma."

„Þeir enduðu í því að þurfa að fá inn leikmann í örvæntingu á gluggadegi."

„Ighalo gæti gert mjög vel, hann gæti aðlagast vel og skorað mörk. En sú staðreynd að félagið er í þessari stöðu, vitandi það fyrir mörgum mánuðum að Lukaku og Sanchez væru að fara, það segir okkur að félagið á í vandræðum með að vinna á leikmannamarkaðnum á sniðugan hátt," sagði Neville.

Ighalo gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir Manchester United gegn Chelsea þann 17. febrúar næstkomandi.

Man Utd gerði markalaust jafntefli við Wolves á Old Trafford í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner