Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 02. febrúar 2020 11:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Sjáðu allt það helsta úr leikjum laugardagsins á Englandi
Salah skoraði tvö mörk í gær í 4-0 sigri Liverpool á Southampton.
Salah skoraði tvö mörk í gær í 4-0 sigri Liverpool á Southampton.
Mynd: Getty Images
Það fóru fram átta leikir í ensku úrvalsdeildinni í gær, tveimur leikjum lauk með markalausu jafntefli þrátt fyrir það má segja að mikið hafi verið skorað í gær, alls voru skoruð 23 mörk.

Chelsea heimsótti Leicester í fyrsta leik dagsins en þar var niðurstaðan 2-2 jafntefli í fjörugum leik.

Klukkan 15:00 var flautað til leiks í sex leikjum, Liverpool sigraði Southampton örugglega, 4-0. Sheffield United hafði betur gegn Crystal Palace á Selhurst Park, 0-1.

Bournemouth náði í mikilvæg þrjú stig þegar þeir sigruðu Aston Villa 2-1. Everton náði á ótrúlegan hátt að vinna Watford eftir að hafa lent 2-0 undir í leiknum, sigurmarkið kom í uppbótartíma og gestirnir voru þar að auki manni færri.

West Ham fór illa að ráði sínu gegn Brighton, heimamenn náðu tvisvar í leiknum tveggja marka forystu en leiknum lauk hins vegar með 3-3 jafntefli.

Eins og fyrr segir voru markalausu jafnteflin tvö, í viðureign Newcastle og Norwich, einnig var markalaust á Old Trafford í viðureign Manchester United og Wolves.

Hér að neðan má sjá allt það helsta úr leikjum gærdagsins á Englandi, myndbrotin voru birt á vef mbl.is.

Leicester 2-2 Chelsea


Liverpool 4-0 Southampton


Crystal Palace 0-1 Sheffield United


Burnemouth 2-1 Aston Villa


Watford 2-3 Everton


West Ham 3-3 Brighton


Newcastle 0-0 Norwich


Manchester United 0-0 Wolves

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 23 5 5 77 26 +51 74
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner
banner