Páll Viðar Gíslason, þjálfari Magna, var í viðtali eftir leik liðsins gegn Stjörnunni í dag. Stjarnan burstaði Magna með sex mörkum, 6-0. Palli var meðal annars spurður út í leikinn, framhaldið og leikmannahópinn.
„Ég er mjög ánægður með fyrri hálfleik en hrikalega ódýr mörk sem þeir skoruðu í seinni. Við vorum skipulagðir og flottir í fyrri, vörðumst vel og áttum flottar sóknir," sagði Palli.
„Þriðja markið fór með þetta og útskýrir þetta 6-0 tap það koma þrjú mjög ódýr mörk sem við erum að gefa."
„Næst á dagskrá er að skora mark, okkur vantar mark, svo er það æfingaferð. Stefnan er að vera klárir fyrir fyrsta leik í Inkasso."
„Við spilum á því sem við höfum, það er Magni í dag, við gerum það líka í sumar. Ég treysti hverjum sem er sem fer í þennan Magna búning til þess að leggja sig fram og standa sig vel í þessari deild. Við vorum að spila við hæsta 'levelið' á Íslandi í dag og urðum laglega undir í dag."
„Mér finnst ekkert rosalega gaman að tala um þá sem eru ekki að spila með Magna í dag, ég vil frekar tala um þá sem eru að spila. Ef þetta er ekki skóli fyrir þessa stráka þá veit ég ekki hvað."
„Mér fannst við gefast upp síðasta hálftímann og ég er aldrei sáttur við það."
„Magni ætlar að berjast í hverjum einasta leik til að slást um hvert einasta stig".
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.

Athugasemdir