Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 02. mars 2020 22:02
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Forest náði í stig með umdeildu jöfnunarmarki
Lewis Grabban skoraði jöfnunarmark Forest
Lewis Grabban skoraði jöfnunarmark Forest
Mynd: Getty Images
Middlesbrough 2 - 2 Nott. Forest
0-1 Ryan Yates ('29 )
1-1 Rudy Gestede ('40 )
2-1 Lewis Wing ('44 )
2-2 Lewis Grabban ('86 )

Middlesbrough og Nottingham Forest gerðu 2-2 jafntefli í ensku B-deildinni í kvöld en spilað var á Riverside-leikvanginum.

Ryan Yates kom Forest yfir á 29. mínútu áður en framherjinn reyndi, Rudy Gestede, jafnaði fyrir Boro.

Lewis Wing kom Boro yfir undir lok fyrri hálfleiks og var útlit fyrir að liðið myndi hafa sigur en Lewis Grabban var þó á öðru máli og jafnaði á 86. mínútu.

Markið var umdeilt en boltinn barst til hans í teignum með markvörðinn í bakið. Leikmenn Boro vildu meina að Grabban hafi verið rangstæður og brotið á markverði liðsins en ekkert var dæmt.

Lokatölur 2-2. Middlesbrough er í 22. sæti með 38 stig en Forest í 4. sæti með 60 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner