Harvey Elliott mun ekki spila með Liverpool í bikarleiknum gegn Chelsea á morgun. Þessi ungi vængmaður hefur spilað sjö aðalliðsleiki á þessu tímabili og hefur spilað í báðum umferðum bikarsins hingað til.
Elliott var nýlega meiddur í baki og hefur verið tekin ákvörðun um að þessi 16 ára leikmaður spili með U19 liðinu í Evrópukeppni unglingaliða á morgun, leikið verður gegn Benfica.
Elliott var nýlega meiddur í baki og hefur verið tekin ákvörðun um að þessi 16 ára leikmaður spili með U19 liðinu í Evrópukeppni unglingaliða á morgun, leikið verður gegn Benfica.
Neco Williams, Curtis Jones og Ki-Jana Hoever verða hinsvegar allir í hópnum.
„Við erum með breiðan hóp og getum tekið ákvarðanir. Harvey var að glíma við bakmeiðsli en er orðinn góður," segir Jurgen Klopp.
Joe Gomez og James Milner eru klárir í slaginn á ný en
Jordan Henderson og Xherdan Shaqiri eru enn á meiðslalistanum.
Athugasemdir