Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 02. mars 2020 17:15
Magnús Már Einarsson
Hazard í aðgerð - Vonast til að hann nái lokasprettinum
Mynd: Getty Images
Eden Hazard fer næstkomandi fimmtuadg í aðgerð í Bandaríkjunum vegna meiðsla á ökkla.

Hinn 29 ára gamli Hazard ökklabrotnaði gegn Levante um þarsíðustu helgi.

Belginn var nýkominn af stað aftur eftir önnur ökklameiðsli og nú er hann á leið í aðgerð.

Real Madrid vonast til að aðgerðin gangi vel og að Hazard geti náð síðustu leikjum tímabilsins í vor.

Hann gæti þá komist á fulla ferð áður en belgíska landsliðið fer á EM í sumar.
Athugasemdir
banner
banner