Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 02. mars 2020 22:32
Brynjar Ingi Erluson
Luiz hrósar ungu leikmönnunum: Þeir eru með frábært hugarfar
David Luiz
David Luiz
Mynd: Getty Images
David Luiz, varnarmaður Arsenal, var ánægður með ungu leikmennina í 2-0 sigrinum á Portsmouth í enska bikarnum í kvöld en hann hrósaði þeim sérstaklega í viðtali við BT Sport.

Sokratis og Eddie Nketiah skoruðu mörk Arsenal í leiknum en Reiss Nelson bjó bæði mörkin til.

Luiz er ánægður með andann í liðinu og bætinguna frá því Mikel Arteta kom og hrósaði þá ungu leikmönnum sérstaklega.

„Ég var ánægður með liðið í kvöld og sérstaklega ungu strákana. Þeir eru með frábært hugarfar og skilja hvað þarf til að spila á svona háu stigi," sagði Luiz.

„Það var frábært að halda hreinu. Þetta er eitthvað sem þarf að læra og við gerðum frábærlega í kvöld. Það eru allir með hundrað prósent einbeitingu."

„Ég sagði við ungu strákana að þeir eru að fá frábært tækifæri hjá stóru félagi. Ég er elstur í liðinu en ég finn innra með mér að ég verð ungur að eilífu,"
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner