Þýski landsliðsmaðurinn Timo Werner er hættur að fylgja RB Leipzig á Twitter en hann gerði það eftir að Leipzig grínaðist með tap Liverpool gegn Watford í ensku úrvalsdeildinni.
Liverpool og Leipzig hafa verið í viðræðum um Werner síðustu vikur samkvæmt ensku blöðunum en það er talið ansi líklegt að hann gangi til liðs við Liverpool í sumar.
Werner hefur gert 27 mörk og lagt upp 11 í 34 leikjum á þessu tímabili en hann er með klásúlu í samning sínum upp á 25 milljónir punda.
Þýski framherjinn var að fylgja liði sínu Leipzig á Twitter hann hætti því eftir 3-0 tap Liverpool gegn Watford. Leipzig birti mynd við færslu Liverpool um tapið en myndin var af Werner að horfa undrandi á símann sinn.
Werner hætti að fylgja Leipzig á Twitter í kjölfarið en hann hætti einnig að fylgja þýska landsliðinu og Out of context football.
Athugasemdir