Levante 0 - 2 Huesca
0-1 Rafa Mir ('15 )
0-2 Rafa Mir ('54 )
0-1 Rafa Mir ('15 )
0-2 Rafa Mir ('54 )
Rafa Mir var hetja Huesca er liðið vann Levante 2-0 í spænsku deildinni í kvöld.
Fyrra markið gerði hann á 15. mínútu. David Ferreiro átti þá laglega fyrirgjöf af vinstri vængnum inn í teiginn og skoraði Rafa nokkuð örugglega af stuttu færi.
Hann gerði síðara markið á 54. mínútu eftir hárnákvæma sendingu frá Jaime Seoane.
Rafa er kominn með 10 mörk í 29 leikjum í spænsku deildinni en hann hefur átt frábært tímabil með nýliðum Huesca sem eru í 18. sæti með 24 stig.
Athugasemdir