Miðjumaðurinn Charles Aranguiz er búinn að framlengja samning sinn við Bayer Leverkusen í þýska boltanum þrátt fyrir áhuga úr öðrum deildum.
Aranguiz er 31 árs gamall miðjumaður og hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Leverkusen undanfarin ár.
Samningur hans hefði runnið út í sumar og Aranguiz því verið frjáls ferða sinna, en hann ákvað að halda tryggð við félagið sem fékk hann til Evrópu.
Hann hefði getað yfirgefið Leverkusen á frjálsri sölu en samþykkti þess í stað þriggja ára samning, til 2023.
„Charles er afar mikilvægur partur af okkar liði. Samræður gengu vel," sagði Rudi Völler, yfirmaður íþróttamála hjá Leverkusen.
Athugasemdir