Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 02. maí 2020 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Kjánalegt að bera mig og Bale saman"
Mynd: Getty Images
„Það er ekki hægt að bera mig og Gareth Bale saman," segir Daniel James, vængmaður Manchester United.

„Hann hefur gert það mikið að það er ekki hægt að bera okkur saman. Hann hefur verið frábær með Wales og gerir helling fyrir okkar lið og yngri leikmenn."

„Það er of mikið að bera okkur saman. Sjáið hvað hann hefur gert, eins og t.d. að vinna Meistaradeildina, það sem hann hefur afrekað er stórkostlegt."

„Maðu lítur upp til leikmanna eins og hans. Það er kjánalegt að bera mig og Bale saman,"
sagði James við Sky Sports.

James hefur spilað 37 leiki fyrir Manchester United. Gareth Bale hefur skorað meira en 100 mörk fyrir Real og hefur verið skærasta stjarna Wales í rúman áratug.

Sjá einnig:
Daniel James: Óraunverulegt að spila með hetjunni sinni
Athugasemdir
banner
banner
banner