Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, er bjartsýnn fyrir því að spænska deildartímabilið fari aftur af stað.
Lið á Spáni geta byrjað að æfa frá og með næsta mánudegi. Viku síðar mega leikmenn byrja að æfa saman, með ströngum reglum, og viku þar á eftir verður vonandi hægt að æfa með hefðbundnu sniði.
Verði þetta að veruleika er ljóst að spænska deildin myndi fara aftur af stað seinni partinn í júní.
„Við erum nú þegar búin að leyfa einstaklingsæfingar í liðsíþróttum. Boltinn er hjá knattspyrnu- og deildasamböndum," sagði Pedro Sanchez.
„Við vonum að fótboltinn muni snúa aftur sem fyrst. Leikir verða aðeins sýndir í sjónvarpi til að byrja með."
Athugasemdir