Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 02. maí 2021 12:50
Victor Pálsson
Allar líkur á að Lacazette nái leiknum við Villarreal
Mynd: Getty Images
Það eru allar líkur á því að Alexandre Lacazette verði með Arsenal gegn Villarreal í Evrópudeildinni næsta fimmtudag.

Franski landsliðsmaðurinn hefur ekki spilað leik síðan 18. apríl er hann meiddist gegn Fulham.

Meiðsli aftan í læri hafa haldið honum frá keppni en hann missti af leikjum gegn Everton og svo Villarreal.

Arsenal tapaði fyrri leiknum í undanúrslitum Evrópudeildarinnar 2-1 gegn spænska liðinu en á enn heimaleikinn inni.

Frakkinn er ekki með gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í dag en ætti að verða klár fyrir leikinn í vikunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner