Fyrsta umferðin í Pepsi Max-deild karla klárast í kvöld með tveimur viðureignum.
Breiðablik tekur á móti KR í afar athyglisverðum leik. Báðum þessum liðum er spáð góðu gengi í sumar, þá sérstaklega Blikum. Víkingur Reykjavík tekur á móti nýliðum Keflavík á sama tíma en það var fjör þegar þessi lið mættust í Lengjubikarnum í vetur.
Það er jafnframt leikið í Mjólkurbikarnum í dag, bæði í Mjólkurbikar karla og kvenna.
Alla leiki dagsins má sjá hér að neðan.
sunnudagur 2. maí
Pepsi Max-deild karla
19:15 Breiðablik-KR (Kópavogsvöllur)
19:15 Víkingur R.-Keflavík (Víkingsvöllur)
Mjólkurbikar karla
13:00 Leiknir F.-Höttur/Huginn (Fjarðabyggðarhöllin)
14:00 Grindavík-Hvíti riddarinn (Grindavíkurvöllur)
14:00 Stokkseyri-Haukar (JÁVERK-völlurinn)
Mjólkurbikar kvenna
14:00 SR-Álftanes (Eimskipsvöllurinn)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir