Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 02. maí 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ramos klár í seinni leikinn gegn Chelsea
Mynd: Getty Images
Sergio Ramos, fyrirliði Real Madrid, er klár í slaginn fyrir seinni leikinn í undanúrslitum Meistaradeildarinnar gegn Chelsea.

Ramos hefur misst af síðustu níu leikjum spænska stórveldisins vegna meiðsla.

Ramos byrjaði að æfa aftur á fullu á föstudag en hann spilaði ekki með Osasuna í gær.

Það er vonast til þess að hann verði alveg klár í slaginn á miðvikudag gegn Chelsea. Það væri frábært fyrir Real enda er Ramos mikill leiðtogi og fyrst og fremst, gríðarlegur sigurvegari.

Fyrri leikur Chelsea og Real Madrid endaði 1-1, en seinni leikurinn fer fram á heimavelli Chelsea í London, á Stamford Bridge.
Athugasemdir
banner
banner
banner