Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 02. maí 2021 13:00
Hafliði Breiðfjörð
Vann 12 milljónir
Mynd: 1X2
Glúrinn tippari á Íslandi var með alla leikina 13 rétta á Enska getraunaseðlinum á laugardaginn.

Vinningur fyrir 13 rétta er um 11 milljónir en með aukavinningum fyrir 12, 11 og 10 rétta fer upphæðin langleiðina í 12 milljónir króna.

Tipparinn tippar hjá Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík og hefur stutt við bakið á þeim í langan tíma.

Þeir sem vilja styðja við bakið á ÍFR þegar þeir tippa merkja getraunaseðla sína með númerinu 121.


Athugasemdir
banner
banner
banner