Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. maí 2022 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísland í dag - Þrír leikir í þriðju umferð
KA er með fullt hús.
KA er með fullt hús.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Besta deildin heldur áfram göngu sinni í dag og verða þrír leikir spilaðir. Með þessum leikjum klárast þriðja umferð deildarinnar.

Klukkan 18:00 er fyrsti leikur dagsins þegar KA tekur á móti Keflavík á Dalvík. KA-menn hafa farið mjög vel af stað og eru með fullt hús stiga fyrir þennan leik. Á meðan eru Keflvíkingar án stiga.

Nýliðar Fram fá ÍA í heimsókn klukkan 19:15 og ætla Skagamenn sér eflaust að fylgja eftir frábærum leik gegn Víkingum á Akranesi um síðustu helgi.

Á sama tíma og leikurinn í Safamýri er, þá mætast Víkingur R. og Stjarnan í Fossvogi.

mánudagur 2. maí

Besta-deild karla
18:00 KA-Keflavík (Dalvíkurvöllur)
19:15 Fram-ÍA (Framvöllur)
19:15 Víkingur R.-Stjarnan (Víkingsvöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner