mán 02. maí 2022 11:49
Elvar Geir Magnússon
Leikirnir sem Chelsea, Arsenal og Tottenham eiga eftir í baráttunni um Meistaradeildarsæti
Tottenham og Arsenal eiga eftir að mætast.
Tottenham og Arsenal eiga eftir að mætast.
Mynd: EPA
Thomas Tuchel, stjóri Chelsea.
Thomas Tuchel, stjóri Chelsea.
Mynd: EPA
Arsenal og Tottenham unnu bæði í gær en Chelsea tapaði óvænt gegn fallbaráttuliði Everton. Lundúnaliðin þrjú eru í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti, sæti þrjú og fjögur í deildinni.

Tottenham er nú fimm stigum á eftir Chelsea en nú þegar fjórar umferðir eru eftir er þetta orðið að þriggja liða baráttu um Meistaradeildarsæti.

Chelsea er með flest stig og þegar leikjadagskráin er skoðuð er liðið einnig í þægilegri stöðu. Þrír af síðustu fjórum leikjum Chelsea eru gegn liðum í neðri helmingnum.

Tottenham og Arsenal eiga eftir að mætast innbyrðis í svakalegum leik þann 12. maí. Lokaumferðin verður 22. maí.

Leikirnir sem Chelsea (3. sæti, 66 stig) á eftir:
Chelsea - Wolves
Leeds - Chelsea
Chelsea - Leicester
Chelsea - Watford

Leikirnir sem Arsenal (4. sæti, 63 stig) á eftir:
Arsenal - Leeds
Tottenham - Arsenal
Newcastle - Arsenal
Arsenal - Everton

Leikirnir sem Tottenham (5. sæti, 61 stig) á eftir:
Liverpool - Tottenham
Tottenham - Arsenal
Tottenham - Burnley
Norwich - Tottenham
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 28 20 4 4 70 24 +46 64
2 Liverpool 28 19 7 2 65 26 +39 64
3 Man City 28 19 6 3 63 28 +35 63
4 Aston Villa 29 17 5 7 60 42 +18 56
5 Tottenham 28 16 5 7 59 42 +17 53
6 Man Utd 28 15 2 11 39 39 0 47
7 West Ham 29 12 8 9 46 50 -4 44
8 Brighton 28 11 9 8 50 44 +6 42
9 Wolves 28 12 5 11 42 44 -2 41
10 Newcastle 28 12 4 12 59 48 +11 40
11 Chelsea 27 11 6 10 47 45 +2 39
12 Fulham 29 11 5 13 43 44 -1 38
13 Bournemouth 28 9 8 11 41 52 -11 35
14 Crystal Palace 28 7 8 13 33 48 -15 29
15 Brentford 29 7 5 17 41 54 -13 26
16 Everton 28 8 7 13 29 39 -10 25
17 Luton 29 5 7 17 42 60 -18 22
18 Nott. Forest 29 6 7 16 35 51 -16 21
19 Burnley 29 4 5 20 29 63 -34 17
20 Sheffield Utd 28 3 5 20 24 74 -50 14
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner