Hinn 19 ára gamli Ansu Fati hefur verið einstaklega óheppinn með meiðsli á þessari leiktíð.
Fati hefur verið frá vegna meiðsla síðustu þrjá mánuðina en þar áður hafði hann gengist undir nokkrar hnéaðgerðir. Það er vonast til þess að hann sé orðinn heill heilsu núna.
Fati sneri aftur í leikmannahóp Barcelona í gær þegar liðið spilaði við Mallorca og hann mun reyna að spila nokkra leiki áður en tímabilið klárast. Hann spilaði 15 mínútur í gærkvöldi.
Leikmaðurinn efnilegi hefur aðeins náð að spila 21 leiki á síðustu tveimur tímabilum.
Það er vonandi að hann sé laus við meiðslin, en það eru bundnar miklar vonir við hann fyrir framtíðina.
Athugasemdir