Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 02. maí 2022 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Witsel útilokar bara að fara til Belgíu
Axel Witsel.
Axel Witsel.
Mynd: Getty Images
Belgíski miðjumaðurinn Axel Witsel hefur staðfest að þetta tímabil verði hans síðasta með Borussia Dortmund í Þýskalandi.

Witsel mun róa á önnur mið þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar.

Witsel, sem er 33 ára gamall, kom til Dortmund frá Tianjin Tianhai í Kína fyrir fjórum árum síðan. Í heildina hefur hann spilað 143 leiki fyrir félagið og skorað 13 mörk.

Í viðtali um helgina sagðist Witsel aðeins útiloka það að fara heim til Belgíu; það væri ekki komið að því strax.

Mögulega verður næsti áfangastaður hans Los Angeles í Bandaríkjunum þar sem hann er sagður á óskalistum beggja MLS-félaganna þar í borg.
Athugasemdir
banner
banner