Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
banner
   lau 02. maí 2026 21:56
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Liðsfélagi Mikaels læsti búrinu - Markalaust hjá Como og Napoli
Justin Bijlow var frábær í marki Genoa
Justin Bijlow var frábær í marki Genoa
Mynd: EPA
Como og Napoli skildu jöfn
Como og Napoli skildu jöfn
Mynd: EPA
Como og Napoli gerðu markalaust jafntefli í Meistaradeildarsætisbaráttu í Seríu A á Ítalíu í dag.

Svolítið er síðan Napoli datt úr leik í titilbaráttunni og snúast síðustu leikirnir bara um það að tryggja Meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð.

Como sýndi alla vega í leiknum í dag að liðið á vel heima í þeirri keppni. Það skapaði sér fullt af færum og í raun ótrúlegt að það hafi ekki tekið meira en stig úr leiknum.

Napoli sýndi ekki sínar bestu hliðar fyrr en undir lok leiks er Scott McTominay kom sér í úrvalsfæri en skaut framhjá og þá átti Matteo Politano langskot sem hafnaði í stönginni.

Markalaust jafntefli var niðurstaðan sem var mjög svekkjandi fyrir Como sem þurfti á öllum stigunum að halda en Napoli eflaust sátt með sín 70 stig í öðru sætinu. Como er í 5. sæti með 62 stig, tveimur stigum frá Meistaradeildarsæti.

Hollenski markvörðurinn Justin Bijlow átti stórleik í marki Genoa sem gerði markalaust jafntefli við Atalanta. Hann átti sjö markvörslur og sótti þetta stig fyrir Genoa.

Mikael Egill Ellertsson lék allan leikinn með Genoa sem er í 14. sæti með 40 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Atalanta 0 - 0 Genoa

Como 0 - 0 Napoli

Udinese 2 - 0 Torino
1-0 Kingsley Ehizibue ('45 )
2-0 Thomas Kristensen ('51 )


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 34 25 4 5 80 31 +49 79
2 Napoli 35 21 7 7 52 33 +19 70
3 Milan 34 19 10 5 48 27 +21 67
4 Juventus 34 18 10 6 57 29 +28 64
5 Como 35 17 11 7 59 28 +31 62
6 Roma 34 19 4 11 48 29 +19 61
7 Atalanta 35 14 13 8 47 32 +15 55
8 Lazio 34 12 12 10 37 33 +4 48
9 Bologna 34 14 6 14 42 41 +1 48
10 Udinese 35 13 8 14 43 46 -3 47
11 Sassuolo 34 13 7 14 41 44 -3 46
12 Parma 34 10 12 12 25 40 -15 42
13 Torino 35 11 8 16 39 58 -19 41
14 Genoa 35 10 10 15 40 48 -8 40
15 Fiorentina 34 8 13 13 38 45 -7 37
16 Cagliari 34 9 9 16 36 49 -13 36
17 Lecce 35 8 8 19 24 47 -23 32
18 Cremonese 34 6 10 18 26 51 -25 28
19 Verona 34 3 10 21 23 56 -33 19
20 Pisa 35 2 12 21 25 63 -38 18
Slapp
banner
banner